Iðjað á akri sögunnar
Um allt sem á þessum vef birtist gildir fyrirvarinn gamli í formála Hungurvöku (um 1200): „Þat mun af mínum völdum ok vanrækt, ef þat er nokkut í þessu máli, sem rángt reynist, þat er ritað er.“
Úr Snorra-Eddu: Heimdallur með Gjallarhornið. Teikning eftir Jakob Sigurðsson (1727-1779). Nks 1867 4to.
Nýjasta efni
Greinar
Hér segir frá hugmynd Hallgríms Kristinssonar fyrsta forstjóra Sambands íslenskra samvinnufélaga og Einars Jónssonar myndhöggvara frá 1916 um einbýlishús, sannkallað skrauthýsi á Skólavörðuholti við hliðina á Hnitbjörg, safnhúsi Einars. Húsið var hugsað fyrir Hallgrím og fjölskyldu hans. Því miður reis það aldrei.
Hér birtist er eftirmáli bókar minnar Séra Friðrik og drengirnir hans sem Ugla gaf út haustið 2023.
Þvingunarbúnað frá geðsjúkrahúsinu á Kleppi er að finnan innan um rykfallin þingskjöl í skjalasafni Alþingis. Þetta er óvænt enda hefur verið talið að öllum slíkum búnaði, sem notaður var á fjórða áratug síðustu aldar og fyrr til að halda erfiðum sjúklingum í skefjum, hafi verð fargað fyrir mörgum áratugum. Hér er varpað ljósi á þetta mál í heild og m.a. byggt á gögnum sem ekki hafa áður verið notuð.
Léttara hjal
Ritsíminn sem tekinn var í notkun 1906 hefur lengi verið talinn eitt mikilvægasta verk Hannesar Hafstein á ráðherrastól í byrjun síðustu aldar. Þótt mörgum þyki það líklega kynlegt nú á dögum var mikil andstaða við þessa framkvæmd og mátti litlu muna að ráðherrann tapaði orrustunni við andstæðinga sína sem trúðu því að loftskeyti væru betri og ódýrari kostur.
Þjóðsagan um Gilitrutt birtist fyrst á prenti í þjóðsagnasafninu Íslenzk ævintýri árið 1852. Er „gömul kona úr Rangárþingi“ borin fyrir henni. Sagan á sér samsvörun í ævintýrinu um Rumpelstiltskin í safni hinna þýsku Grimmsbræðra sem kom út nokkru fyrr á 19. öld. Hér er sagt frá þeirri túlkun að kannski hafi Gilitrutt ekki verið tröllskessa. Getur það verið?
Skúli Thoroddsen var einn helsti stjórnmálaforingi á Íslandi í lok 19. aldar og á fyrsta áratug hinnar 20. og jafnan í forystu fyrir þeim sem lengst vildu ganga í stjórnfrelssbaráttunni auk þess sem tók upp á arma sína margvísleg framfaramál. Í hugum samherja var Skúli á sinn hátt arftaki Jóns Sigurðssonar forseta.