Icelandic Vikings

Bókin Icelandic Vikings kom út 2013. Þetta er eina bókin eftir mig sem gefin hefur verið út á ensku.

Í kynningarorðum útgefanda, Veraldar, segir: ‘Víkingaöldin var í hámarki þegar Ísland var numið um 870. Varla hefur landið verið spennandi staður fyrir víkinga: óbyggðir úr alfaraleið nyrst í hafi þar sem ekkert fémætt var að finna. Þegar landsmenn hófu að skrá sögu sína í byrjun 12. aldar var ekkert minnst á víkinga. En undir lok aldarinnar og á 13. öld er ekki þverfótað fyrir víkingum af fjölskrúðugasta tagi í sögubókum Íslendinga. Hverjir voru þessir víkingar og fyrir hvað eru þeir helst þekktir?

Í þessari skemmtilegu og upplýsandi bók leitar sagnfræðingurinn Guðmundur Magnússon svara við ýmsum ágengum spurningum um víkinga á Íslandi.’

Previous
Previous

Eimskipafélag Íslands í 100 ár

Next
Next

Íslensku ættarveldin