Frá kreppu til þjóðarsáttar

Þetta er saga Vinnuveitendasambands Íslands (VSÍ) frá stofnun 1934 til 1999 þegar samtökin voru lögð niður og runnu inn í Samtök atvinnulífsins. VSÍ gaf bókina út.

Í kynningarorðum útgefanda segir að hér sé í fyrsta skipti fjallað um það hvernig kjarabaráttan hér á landi horfði við atvinnurekendum. Verkið sé byggt á ítarlegri könnun frumheimilda um hugmyndir og starfshætti vinnuveitenda allt frá því á kreppuárunum. ‘Hafa þessi gögn ekki áður verið aðgengileg fræðimönnum. Er fjallað um efnið í samhengi við sögu íslenskra efnahagsmála og stjórnmála á tuttugustu öld. Skyggnst er um að tjaldabaki og ljósi varpað á afskipti stjórnvalda af vinnudeilum og samskipti forystumanna vinnuveitenda og verkalýðshreyfingar og ríkisstjórna í áranna rás. Megintilgangur verksins er að grafast fyrir um hver hafi orðið árangur af starfi Vinnuveitendasambandsins og hver áhrif þess voru á þjóðfélagsþróunina hér á landi."‘

Fjölmargar ljósmyndir prýða bókina.

Previous
Previous

Thorsararnir

Next
Next

Eimskip frá upphafi til nútíma