Thorsararnir

Bók mín Thorsararnir með undirtitilinn Auður, völd, örlög, kom út fyrir jólin 2005. Óhætt er að segja að þetta sé þekktasta rit mitt, enda varð það metsölubók og kom síðar einnig út sem kilja. Ég á eftir að segja meira frá ævintýrum þessarar bókar síðar.

Í káputexta segir útgefandinn, Almenna bókafélagið (sem var hluti af forlaginu Eddu sem þá var starfandi): ‘Í augum danska búðarsveinsins Thors Jensen var Ísland land tækifæranna þótt þau væru flestum öðrum hulin. Hann ákvað að láta slag standa og gerast Íslendingur. Thor hafði glöggt auga fyrir sóknarfærum og eftir að hafa þreifað fyrir sér um í verslun sannfærðist hann um að framtíðin lægi i íslenskri stórútgerð. Hann stofnaði togarafélagi Kveldúlf og lagði þar með hornstein að einu mesta ættarveldi landsins - veldi Thorsaranna.

Á blómatíma ættarinnar höfðu Thorsararnir mörg járn í eldi og þræðirnir lágu hvarvetna um samfélagið, útgerð, landbúnað, útflutningsverslun, utanríkisþjónustu og raunar æðstu stjórn. Eins og nærri má geta var litið upp til þeirra, en Thorsararnir áttu einnig fjölda öfundarmanna í viðskiptalífi og á vettvangi stjórnmálanna - óvildarmenn sem áttu þann draum æðstan að ganga á milli bols og höfuðs á þeim.

Thorsararnir bárust á í einkalífinu en undir niðri sveimuðu ýmis fjölskylduleyndarmál - þar eins og annars staðar skiptust á skin og skúrir. Saga Thorsaranna er saga um ótrúleg auðævi og takmarkalítil áhrif en einnig saga um misjöfn örlög.’

Previous
Previous

Nýja Ísland

Next
Next

Frá kreppu til þjóðarsáttar